Bestastur!!!

Dínó; ISCH Perluskins Casper Dínó, var heiðraður á dögunum sem stigahæsti snögghærði chihuahua hundur ársins! Eins og áður hefur komið fram náði Dínó þeim merka árangri að verða fjórði besti hundur sýningar í júní síðastliðnum, en til að þess að komast í úrslit um besta hundar sýningar varð hann að vinna sinn tegundar hóp, þann stærsta af þeim 10.

Í minningu INTCH ISCH Íslands-Ísafoldar Angantýrs, pabba Dínó, voru í fyrsta sinn heiðraðir stiguhæstu tjúarnir, snöggur og loðinn, og verður þetta árlegur viðburður.

Til hamingju giri…!!!!

 

 

 



Muusa litla er dáin… 30.10.08
Muusa; Pähkinän Arnica Montana, hefur kvatt okkur eftir baráttu við erfið veikindi.

Muusa var einstakur hundur og verður leitun að öðrum eins karakter. Hún var prímadonna í hæsta klassa og vissi hvað hún vildi. Hún hafði einstaka stjórnunarhæfileika bæði á mönnum og dýrum og fékk ávallt sínu fram. Muusa var lítið gefin fyrir útiveru af öllum toga og naut sín hvað best á púða uppí sofa eða í bæli við ofninn… Hún var gleðigjafi mikill og verður hennar sárt saknað.

Síðastliðin tvö ár átti Muusa heimili á “Bárunni” hjá Eddu og Steina þar sem hún naut virðingar og aðdáunar.

Eddu og Steina vil ég votta samúð mína og vil ég þakka þeim fyrir að hafa gefið sig að Muusu frá upphafi og reynst henni sem klettur í veikindum hennar.

Góða ferð Muusa mín…

Chaplin týndur….FUNDINN!!!

Sá leiðinlegi atburður gerðist í gær um fjögurleytið að Chaplin minn týndist. Tildrög þess voru þau að í göngunni sem við vorum í við Sólheimakot í gær mættum við Berglind og Halldóra Lind, ungri stúlku með fjóra labrador hunda, tvo unga og fjöruga og tvo einhverju eldri. Eitthvað færðist fjör í leikinn, mismikið hjá hvoru liðinu, með þeim afleiðingum að Chaplin og Dínó enduðu einhvers staðar úti í buskanum og allt í hers höndum…!!! Eftir ekki svo langa stund fundum við Dínó heilan á húfi á þeim slóðum þar sem hittingurinn átti sér stað. Hvergi sást til Chaplins. Um sjöleytið í gær var svo kominn flokkur fólks sem tilbúið var til að leggja sitt af mörkum við leitina að krónprinsinum. Leitin bar þó engan árangur þó að sést hefði til hans niður við veg í átt að Hafravatni. Rétt yfir miðnæti í gær stóð okkur ekki annað til boða en að snúa heim, enda ekki skilyrði til frekari leitar. Erfið heimferð það… Um hálf sjö í morgun fór ég svo aftur af stað og mætti fólki sem hefjast vildi handa. Eftir mikla leit og skipulagða fannst Chaplin á þeim slóðum sem síðast sást til hans. Vel á sig kominn, soldið svangur og afskaplega feginn að vera kominn í pabba hendur;)

Ég vil þakka öllum sem komu að leitinni, með beinum eða óbeinum hætti, alveg sérstaklega vel fyrir mig. Þetta hefði ekki verið hægt án ykkar aðstoðar og þrautseigju, og því að sleppa aldrei voninni um að hann myndi finnast…

Takk kærlega fyrir mig; allir!!!!

Desty komin!!! 12.09.08
Þá er Desty komin í kotið eftir langa bið! Desty ber viðurnefni sitt með prýði, engu logið þegar sagt er að hún sé eins og orustuþota…hreyfingar eru örar og oft á tíðum stjórnlausar…sem er bara gaman og hún gleðin uppmáluð. Tjúarnir eru í viðræðum um hvort hún fái að vera ein af fjölskyldunni og er niðurstöðu fundarins að vænta upp úr helgi. Desty virðist þó hafa skorað nokkur stig eftir að hún fór í klippinguna í dag…. ;)

Takk fyrir allir sem komu að því að gera þetta verulegt….hún er æði!!!!

Desty er lent!!! 11.08.08
Eftir langa bið er Desty lent á fróni og við tekur langur mánuður fyrir mig að bíða…;) Eins og eflaust mörgum er kunnugt um lenti Desty í smá óhappi í Svíþjóð, með tilheyrandi útgjöldum og taugastríði um að hún yrði ekki í lagi. En því að þakka að Anna og Steinar eru snör í snúningum og vant hundafólk var brugðist skjótt við og færustu læknar settir í málið. Desty er á batavegi, hefur sýnt ótrúlegan bata á stuttum tíma og kemur til með að ná sér að fullu með tilheyrandi ánægju eiganda…!!! Minni fólk á hvað gott getur verið að hafa dýrin sín tryggð; maður getur verið vitur eftirá… VisAgria er málið!!!

Velkomin heim púðlurassgatarófan mín!!!

BIS 4

Sumarsýning Hundaræktarfélags Íslands afstaðin og úrslitin hreint út sagt æðisleg!!! Dínó; ISCH Perluskins Casper Dínó, náði þeim merka áfanga að verða í fyrsta sæti í tegundarhóp 9 og þar með kom farmiði inní Besti Hundur Sýningar…þar sem Dínó hafnaði í fjórða sæti!!! Æðislegt að fá fylgja honum þangað og tilfinningin ólýsanleg, eitthvað sem við báðir gætum vanist ;) Þetta er í annað sinn sem chihuahua vinnur tegundarhóp 9 en sá sem var fyrri til var pabbi Dínó, sá merki og fallegi hundur og ein ástæða þess að ég fékk mér chihuahua, INTUCH ISCH Íslands Ísafoldar Angantýr. Hann hefur jafnframt tvisvar verið BIS 1…!!! Ég vil óska öllum til hamingju með sinn árangur og þó sérstaklega Önnu sem lenti í þriðja sæti í tegundarhópnum með síðhærða chihuahua hundinn Himna Eld og þeim sem deildu ánægjunni með okkur Dínó í efstu fjórum sætum í besta hund sýningar. Til hamingju amma Rúna með drenginn…. ;)

Frímann; Misty Meadows Fireman, fékk heiðursverðlaun og keppti í besta hvolp 6-9mánaða en fékk ekki sæti…dómarinn hefur ekki tekið eftir honum, hann er svo lítill ;)

Urður, Conan Catchas Pop Up The World, fékk heiðursverðlaun í ungliðaflokk og keppti um bestu tík tegundar og lenti þar í fimmta sæti. Ágætt það þar sem hún er bara 11 mánaða.

Við erum sátt í Conan Catchas kotinu… ;)

Frímann 19/6/08
Frímann losnaði úr vistinni í dag, ferskur og fínn og í flottu formi.
Við Berglind brunuðum saman um morguninn að ná í strákinn og var svo Freeman/GROUP/ hittingur um kvöldið. Sameiginleg niðurstaða var að drengurinn er algjörlega framar okkar björtustu vonum. Velkominn heim Frímsi litli…


Lítil drengur er kominn í heiminn. 22/608

Conan Catchas Frida Kahlo eignaðist í sínu öðru goti einn hvolp en að þessu sinni dreng. Hann er svartur, tan og hvítur og eru allir litir vel skýrir nú þegar. Hann hefur ekki fengið nafn ennþá en miklar pælingar eru í gangi;) Frida á fyrir Urði; Conan Catchas Pop Up The World, en litli drengurinn er albróðir hennar. Faðir þeirra er Himna Rapp.

Við bjóðum hjartanlega velkomna í Conan Catchas fjölskylduna hana Desty!!!
Desty; Break-Dance Di San Gimignano, kemur frá Ítalíu en dvelur sem stendur í Svíþjóð hjá Önnu Francescu og Steinari og má með sanni segja að hún haldi þeim við efnið. Desty kemur til landsins þegar hún hefur náð aldri til og er hennar beðið með eftirvæntingu…!!! Langþráður draumur er að rætast með tilkomu púðlunar svörtu, sem er dvergur.

Thank you Francesco for this lovely girl; I will take good care of her... thank you!!!


Meira undir Upprennandi.

Kolka langamma! 7.6.08
Kolka er orðin langamma!!! Það var hann Neró; Conan Catchas Rio De Janeiro sem veitti ömmu sinni þessa blessun. Barnsmóðir hans hún Kaja býr í Sólheimunum og heilsast henni og hvolpinum þeirra vel... enda Böggý aldrei langt undan. Til hamingju Böggý mín og Ragnar!!!

Sumarsýning HRFÍ 7.6.08
Nú líður að sumarsýning HRFÍ og hafa verið skráð til leiks Dínó, Urður og Frímann… við ætlum þó að meta það þegar drengurinn kemur úr einangrun hvort hann höndli það að fara strax á sýningu. Við sjáum til…

Frímann komin til Íslands 20.5.08
Frímann er lentur og er bara eins og hafi ekki gert annað en að ferðast með flugvél.
Telma í einangrunarstöðinni sagði að hann væri svo montinn og góður með sig, öruggur og sjarmerandi strákur!

Gleðilegt sumar 4.5.08

Óskum öllum vinum hér heima og erlendis gleðilegs sumars...!



Heimasíðan opnar
7.4.08
Verið hjartanlega velkomin á nýja heimasíðu Conan Catchas ræktunarinnar.
Hér getið þið skoðað ættbækur, myndir og lesið nýjustu fréttir. Endilega skoðið ykkur um



Úrslit sýningar
7.4.08
Urður "Conan Catchas Pop Up The World" Gerði sér lítið fyrir og varð besti hvolpur tegundar, keppti svo um
besta hvolp sýningar og hafnaði þar í 1.sæti!



 

© Conan Catchas-ræktun. Allur réttur áskilinn.

Daníel Örn Hinriksson

Vefsíða: Anja Björg Kristnsdóttir.