Til baka

Stigahæsti snögghærði chihuahuahundurinn 2009!!!
Annað árið í röð er stigahæsti snögghærði chihuahuahundurinn ISCH Perluskins Casper Dínó! Hann hefur átt góðu gengi að fagna á árinu, hefur verið besti hundur tegundar á öllum sýningum félagsins nema einni. Herbergið þeirra er að fyllast af bikurum, en Dínó er með alla farandbikara deildarinnar fyrir snögghærðan chihuahua...!

Við erum mjög ánægðir með hann, til hamingju Dínó minn... ;)

Haustsýning
HRFÍ 2009
Já,
það var ekki leiðinlegt að vera til 4.október
síðastliðinn! 39 chihuahuahundar voru skráðir.
Kolka, Dínó og Destiny voru skráð til
leiks og ríkti mikil eftirvænting hjá mér
hvernig úrslit skildu falla. Kolka var valin besti hundur
tegundar og fékk sitt síðasta alþjóðlega
meistarastig og er því orðin Alþjóðlegur
meistari, eða Ungfrú Alheimur eins og ég vil
kalla hana. Dínó var einnig valinn besti hundur
tegundar og fékk sitt þriðja og næst síðasta
alþjóðlega meistarastig. Kolka og Dínó
voru sum sé fulltrúar tegundarinnar í grúppunni,
einkennleg tilfinning!!! Destiny fékk íslenskt meistarastig
og alþjóðlegt en þetta er þriðja
íslenska meistarstigið hennar en þar sem hún
er ekki orðin tveggja ára getur hún ekki fengið
titilinn ISCH; íslenskur meistari.
Heimsenda Tóvu-Spor
keppti í fyrsta sinn í meistaraflokk og fékk
meistaraefni og flotta umsögn. Hún endaði svo
sem þriðja besta tík tegundar.
Ekki leiðinleg
helgi skal ég segja ykkur... ;)


Afmælissýning
HRFÍ 2009
Áður
en ég fer að tíunda úrslit minna hunda
frá liðinni sýningu þá vil byrja
á því að þakka stjórn félagsins,
sýningarstjórn og öðrum þeim sem
komu að undirbúning sýningarinnar kærlega
fyrir mig! Sýningin var í alla staði glæsileg
og hefði ekki getað betur skipulögð. Stórglæsileg!!!
Dínó,
Destiny og Frímann voru skráð til leiks báða
dagana.
Dínó var BHT-1 á laugardeginum og Frímann
þriðji besti rakkinn með excellent og meistaraefni.
Dómari var Marie Petersen, Danmörk. Á sunnudeginum
fékk Frímann very good og keypti þar fyrir
ekki um besta rakka tegundar. Dínó fékk excellent
og hafnaði í öðru sæti um besta rakka
tegundar.
Stjarna sýningarinnar
fannst mér vera Destiny! Eins og allir vita sem standa
mér næst stóð til að raka hana niður
í vikunni eftir sýningu því mér
fannst orðin borin von til þess að hún nyti
einhvern tímann verðskuldað gengi á sýningum.
Gott fólk, hún verður ekki rökuð...!
Litla blökkubarnið mitt gerði sér lítið
fyrir og fékk íslenskt meistarastig báða
dagana, annað frá Ake Cronander, Svíþjóð,
og það seinna frá Kari Jarvinen, Finnland, en
hann er mjög fróður um tegundina og gaf hann mér
góð ráð. Svoleiðis að leiðin
að íslenska meistaratitlinum er allt í einu
orðin stutt, vonandi;)
Náfrændi okkar Destiny, Adolf Helgi, átti
einnig góðu gengi að fagna. Hann var að mæta
í fyrsta sinn á sýningu, 11 mánaða,
og fékk báða dagana excellent. Til lukku Dolli.
Heimsenda Tófuspor
varð íslenskur meistari en ég hef verið
svo heppinn að fá að fylgja henni í gegnum
hennar feril...
ÉG
er alsæll...
P.s. Conan og Catcha eru í einangrun.
Sumarsýning
HRFÍ 2009
Já
það er nú bara þannig að hann Dínó
minn er svo fallegur. Það sýndi sig svo sannarlega
á síðustu sýningu þegar hann var
valinn besti hundur tegundar af hinni swissnesku Christine Rossier.
Ekki nóg með það heldur tók Dínó
sér þriðja sæti í tegundarhóp
9 en þangað voru mættir 20 bestu fulltrúar
sinna tegunda. Dómari var Svein Helgeson, norskur. Hann
er svo mikill engill hann Dínó, svo sætur
;)
Sýndar
voru tvær tíkur úr Conan Catchas fjölskyldunni,
mæðgurnar Frida (Conan Catchas Frida Kahlo) og Urður
(Conan Catchas Pop Up The World) og fengu báðar excellent,
fyrstu einkunn.
Við óskum
vinum okkar til hamingju með sinn árangur á
sýningunni...
Prufið
að lesa textann smásælt, það eru svakalega
mörg ess í þessu...hahahaha!!!!
Haldið
ykkur...!!!
Já
gott fólk, haldiði að útvíkkunin
sé ekki bara stöðugt að verða meiri og
meiri! Það er ekki nóg með að Conan sé
að koma í hús heldur kemur Chipau
Catcha líka;)
Æðislega gaman og mikil tilhlökkun, víííííííííííí!!!!
Thank you
again Paula
Á meðfylgjandi
myndum eru Conan og Catcha;)
Útvíkkun
í Conan Catchas kotinu!!!
Það
er mér sönn ánægja að kynna nýjan
dreng til sögunnar.
Hann
heitir Chipau Conan og er fæddur í Svíþjóð
í byrjun febrúar 2009. Hann er væntanlegur
til landsins í júlí og hans beðið
með eftirvæntingu.
Ég
er ræktanda hans, Paulu Liukkonen, ævinlega þakklátur
fyrir hann og alla vináttuna.
Það
er aldrei að vita nema að með honum komi félagi…dúdúrúdúdú;);););)
Gefum honum
gott klapp…!!!

Thank you
Paula for this lovely boy, your kindness and honesty…HUGS;)

Augnskoðun
fimm hundar með ræktunarnafnið Conan Catchas hafi
mætt í augnskoðun um helgina og allir án
athugasemda; CLEAR. einnig dóttir Dínó og
að sjálfsögðu clear.
Afmælisbörnin
í apríl…!
Til
hamingju með afmælin ykkar, Kolka og Dínó!
Kolka
varð sjö ára þann 20.apríl og Dínó
varð sex ára þann 26.apríl, and still
going strong!!!
Til
lukku… ;)
Destiny
er Clear!
Við erum svo svakalega mikið vanda okkur
hérna í Conan Catchas kotinu að auðvitað
var Destiny OptiGen testuð og niðurstöður liggja
fyrir. Auðvitað er hún CLEAR!!!!
Engir
augnsjúkdómar í henni og ekki beri fyrir neitt…
;)
Sýning HRFÍ 28.feb.- 1.mars 2009
Um
helgina var sýning Hundaræktarfélags Íslands.
Metþátttaka var á sýningunni, rúmlega
800 hundar af yfir 90 tegundum mættu. Sjaldan hafi verið
fleiri chihuahua hundar skráðir til leiks eins og nú.
Chihuahua stóðu sig vel og áttu fulltrúa
í mörgum verðlaunasætum. Til hamingju allir
og sérstaklega Silla mín ( Himna-ræktun) með
verðlaunasætin sín!
ISCH
Perluskins Casper Dínó fékk meistaraefni
og varð í fyrsta sæti í meistaraflokk snöggra
chihuahua með einkunina excellent. Hann varð jafnframt besti
rakki tegundar og besti hundar tegundar. Hann fékk alþjóðlegt
meistarastig; CACIB.
Þetta er í sjötta sinn sem Dínó
verður besti hundur tegundar.
ISCH Íslands-Ísafoldar Kolka fékk
meistaraefni og varð í öðru sæti í
meistaraflokk síðhærðra chihuahua með einkunina
excellent. Hún varð þriðja besta tík
tegundar.
Conan
Catchas Pop Up The World (Urður) lenti í fyrsta
sæti í unghundaflokk síðhærðra
chihuahua tíka með einkunina excellent.
Conan
Catchas Top Of The World (Erpur) varð besti rakki í
hvolpaflokk 6-9 mánaða síðhærðra
chihuahua.
Conan
Catchas Christian Dior (Kiddi) varð í fyrsta
sæti í opnum keppnisflokk snögghærðra
chihuahua með einkunina very good.
Misty
Meadows Fireman (Frímann) varð í öðru
sæti í ungliðaflokk snöggra chihuahua rakka
með einkunina very good.
Siv
Jernhake frá Svíþjóð dæmdi
tjúana.
Break-Dance-N
di San Gimignano ( Destiny) varð í fyrsta sæti
í ungliðaflokk með einkunina excellent. Destiny var
ein í sínum flokk og eina minature púðlan.
Það var leiðinlegt að henni skildi ekki geta gengið
betur en að sögn dómara gat hann ekki gefið
henni meistarastig og besta hund tegundar vegna áverka á
kjafti. Eftir slysið í Svíþjóð
síðast sumar fóru tvær fullorðinstennur
og er ör á tungunni. Honum fannst þetta mjög
leiðinlegt eins og mér en mat dómara á
hundum sem mæta með vottorð er huglægt og verður
maður að taka því. Hann var mjög hrifinn
af Destiny og hvatti mig til ræktunar undan henni. Vonandi
gengur okkur betur næst…
Laurent
Pichard frá Swiss dæmdi púðlurnar.
Myndir
koma síðar….

Gleðilegt
nýtt ár!
Það
má segja það að árið 2008 hafi verið
okkur viðburðaríkt. Á deildarsýningu
Chihuahuadeildar í janúar var Conan Catchas Pop Up
The World; Urður, sýnd í fyrsta
sinn og valin annar besti hvolpur sýningar. Urður gerði
sér lítið og varð á vorsýningu
Hundaræktarfélags Íslands í mars besti
hvolpur dagsins!!!
Í
júní fjölgaði svo í Conan Catchas
fjölskyldunni. Misty Meadows Fireman; Frímann,
kom frá Ítalíu með viðkomu í
heilsubótarstöðinni Höfnum. Frímann
heldur heimili hjá Önnu Guðjóns, Elds-mömmu,
en Frímann er í sameign… ;)
Sumarsýning
HRFÍ var okkur heldur betur ánægjuleg. ISCH
Perluskins Casper Dínó , Dínó,
gerði sér lítið fyrir og varð fjórði
besti hundur sýningar!!! Það fór um okkur
feðgana löðrandi gæsahúðin þegar
kallað var…SNÖGGHÆRÐUR CHIHUAHUA og við
töltum inn á rauða dregilinn, sælir með
fjórða sætið í Best in Show ; )
Septembermánuður
er okkur minnistæður. Break-Dance Di San Gimignano;
Destiny, steig út úr búri
sínu á Árskógsströnd að morgni
11.september, kát með að vera komin í menninguna,
þó svo að menningin sé ekki uppum alla veggi
á Árskógsströnd. Destiny dvaldi sem sé
á heilsuhælinu Hrísey meðan heimkoma hennar
var undirbúin. Destiny hefur haldið hverjum manni og
hundi við efnið síðan hún kom heim. Hún
er svo fjarri því að vera pjattrófa bæjarins,
elskar að liggja úti með gamalt bein og skiptir hana
litlu hvort úti sé kaf snjór…!!! Destiny
safnar hári af miklum krafti og er að verða hin myndarlegasta.
Chaplin
týndur! Það var ömurleg
tilfinning, að fara heim eftir mikla leit og bíða
þess að dagur kæmi á nýjan leik til
að leita meira. Við tók mikil leit, skipulögð
í þaula, fullt af fólki, leitarhundum og ekki
leitarhundum. Chaplin fannst svo klukkan 18, verulega ruglaður
í höfðinu og fullur vantrausts bæði til
manna og dýra. Á rúmum sólarhring var
litli hundurinn minn að verða að dýri. Hann var
smá stund að átta sig að fólkið
sem stóð fyrir framan hann var fjölskylda hans.
Eftir þó nokkur “hæ” og “komdu
Chaplin”, var eins og hann kæmist til meðvitundar
um það hver við værum. Í slómó
með væmnri tónlist kom Chaplin í loftköstum
til okkar, vælandi og skælandi og tuðandi yfir því
hvurslags meðferð þetta væri á honum.
Kotroskinn gekk hann svo um dyrnar heima hjá sér og
heilsaði hinum með virtum. Þeir sem heima höfðu
beðið fannst ekki eins mikið til þess koma og
mér að hann væri kominn heim, eins og þeir
væru þess vissir að hann hefði aðeins brugðis
sér í skátaferðalag… Takk allir sem
hjálpuðu mér við leitina, takk.
Chaplin fundinn!
Muusa
mín, Pahkinan Arnica Montana, kvaddi okkur í
október. Muusa hafði átt í veikindum um
nokkurn tíma og ljóst var að borin von var til
þess að hún myndi koma til sjálfs síns
aftur. Það var erfið stund þegar takinu var
sleppt af henni á Bárunni hjá Eddu og Steina.
Muusu verður ávallt minnst sem mikils karakters í
litlum búk, mikil ást. Muusa naut mikillar virðingar
á Bárunni, hjá fjölskyldu sinni og vinum.
Muusu er minnst með söknuði.
Í
nóvember var Dínó, ISCH Perluskins Casper
Dínó, heiðraður sem stigahæsti
snögghærði chihuahua hundur ársins. Í
minningu INTCH ISCH Íslands-Ísafoldar Angantýrs,
pabba Dínó, voru í fyrsta sinn heiðraðir
stiguhæstu tjúarnir, snöggur og loðinn.
Við
hlökkum til að takast á við nýja árið
og óskum við fjölskyldu okkar og vinum farsældar
á komandi ári.

|