Dachshound


ÞÝÐING : Brynja Tomer.

UPPRUNALAND : Mexíkó.

UPPRUNALEGT RÆKTUNARMARKMIÐ VAR SAMÞYKKT : 24.03.2004.

HLUTVERK : Selskapshundur.

FLOKKUN F.C.I. : Teg.hópur 9 Selskapshundur
Flokkur 6 Chihuahueño.
Vinnuprófa er ekki krafist.

STUTT SÖGULEG SAMANTEKT : Chihuahua-hundar eru þekktir fyrir að vera af minnstu hreinræktuðu hundategund í heimi og þeir draga nafn sitt af stærsta ríki Mexíkó ( Chihuahua). Staðhæft er að þessir hundar hafi áður verið villtir og að Toltekar hafi hænt þá að sér. Vitað er að kjölturakkar sem kallaðir voru “ Techichi” og bjuggu í Tula voru notaðir sem skraut í byggingalist fyrri tíma. Til eru styttur af hundum frá þessum tíma sem líkjast mjög nútíma chihuahua-hundum.

HEILDARÚTLIT : Hundurinn er þéttur að sjá. Miklu máli skiptir að höfuðið sé líkt epli í lögun og að hundurinn beri hæfilega langt skottið mjög hátt. Skottið á að vera bogdregið eða mynda hálfhring þannig að skottendi vísi í átt að lend.

MIKILVÆG HLUTFÖLL : Lengd búks er eilítið lengri en hæð hunds frá jörðu uppá herðakamb. Þó er æskilegt að hundar, sérstaklega rakkar, séu nánast ferningslaga, þ.e. álíka langir og háir á herðakamb. Þar sem tíkur þurfa að ganga með hvolpa er í lagi að þær séu örlítið búklengri en rakkar.

LUNDERNI : Kvikur, vökull, fjörlegur og mjög hugrakkur hundur.

HÖFUÐ

Höfuðkúpa :
Kollur : Vel kúptur, líkastur epli í lögun. ( aðaleinkenni tegundarinnar)
æskilegast án lindarbletts þó má hann vera lítill.

Ennisbrún : Augljós, djúp og breið. Ennisbrún á að vera framan við trýnisrót.

ÁSJÓNA :
Nefbroddur : Má vera hvernig sem er á litinn, en hann er fremur stuttur og vísar uppávið.
Trýni : Stutt og beint þegar horft er á það frá hlið. Trýni er breitt við enni en mjókkar fram á við.
Varir : Liggja þétt saman.
Kinnar : Ekki of umfangsmiklar og liggja þétt að kjálkum.
Kjálkar/ Tennur : Skærabit eða tangarbit. Yfirbit, undirbit sem og önnur óeðlileg lögun efri eða neðri kjálka með öllu óásættanleg.
Augu : Stór, dökk og hringlaga. Augnsvipur á að vera mjög vökull. Augu eiga ekki að vera útstæð. Ljós augnlitur er viðurkenndur en er ekki æskilegur.
Eyru : Stór, upprétt og mjög opin. Breið við höfuðið, mjókka svo smám saman fram að rúnuðum endum. Í hvíld skulu þau halla á hlið svo þau myndi 45° horn.

HÁLS : Efri hluti háls er örlítið hvelfdur.
Lengd : Miðlungslangur.
Lögun : Breiðari á rökkum en tíkum.
Húð : Engar húðfellingar. Sérlega æskilegt að síðhærðir hundar hafi löng feldhár á hálsi.

BÚKUR: Þéttur og vel byggður.
Baklína : Bein.
Herðakambur : Rétt sýnilegur.
Bak : Stutt og stinnt.
Lendar : Breiðar og sterklegar, næstum beinar eða örlítið hallandi.
Bringa : Breiður brjóstkassi og djúpur, vel hvelfd rifbein. Brjóstkassi á að virðast rúmgóður þegar horft er framan á hann, en þó ekki ýktur. Frá hlið sést að brjóstkassi nær niður að olnbogum. Hann er ekki tunnulaga.
Undirlína : Kviður er augljóslega uppdreginn. Hundar geta haft slakan kvið en það er óæskilegt.

SKOTT : Skottrót er ofarlega, og skottið virðist beint, er miðlungslangt, og breiðast við skottrót. Mikilvægt er að hundar beri skottið vel, enda er það eitt af einkennum tegundarinnar. Á hreyfingu ber hundurinn skottið ýmist hátt í boga eða í hálfhring þannig að skottendinn vísi í átt að lendum. Með því móti verður heildarsvipur hundsins fallegur. Hundurinn á aldrei að leggja skottið milli afturfóta né á skottið að hringast fyrir neðan bak. Feldhár á skotti eru í samræmi við önur feldhár hundsins. Skott á síðhærðum hundum á að vera eins og fjaðraskúfur. Hundurinn leggur skottið þegar hann er í hvíld og þá er svolítill krókur sjáanlegur.

ÚTLIMIR

FRAMLEGGIR : Beinir og langir. Þegr horft er framan á þá mynda þeir beina línu við olnboga og þegar horft er á þá frá hlið eru þeir beinir.
Axlir : Greinilegar og nokkuð vöðvastæltar. Góðar liðbeygjur eiga að vera frá öxlum að efri fótleggjum.
Olnbogar : Sterkir og nálægir búk til að tryggja frjálslegar hreyfingar.
Kjúkur : Eilítið hallandi, sterklegar og vel hreyfanlegar.

AFTURLEGGIR : Afturleggir eru vel vöðvastæltir, beinir og samhliða. Góðar liðbeygjur eiga að vera við mjaðmir, hné og hækla í samræmi við liðbeygjur á framleggjum.
Hæklar : Stuttir, með greinilegar hásinar. Að aftan sést gott bil á milli þeirra og þeir eru beinir og lóðréttir.

LOPPUR : Loppur eru mjög litlar og sporöskjulaga. Svolítið bil er á milli táa, en ekki of mikið. ( Loppur eiga hvorki að minna á héra- né kattaloppur.) Neglur eiga að vera sérlega vel hvelfdar og hæfilega langar. Þófar eru stinnir og mjög sveigjanlegir. Úlfaklær á að fjarlægja nema í þeim löndum þar sem það er bannað.
ATHUGASEMD: Á Íslandi er bannað að fjarlægja úlfaklær.


HREYFINGAR : Chihuahua hefur bæði fjaðurmagnaðar og kraftmiklar hreyfinar og kemst langan veg á skömmum tíma. Þegar horft er aftan á hann ætti að vera hægt að sjá afturfót stíga í fótspor framfótar. Ef hundur hleypur hratt gætu allar loppur haft tilhneigingu til að leita í sömu spor (sama þyngdarpunkt). Hreyfinar ættu samt að vera kraftmiklar og átakalausar, höfuðburður reistur og bakið beint.

HÚÐ : Mjúk og teygjanleg allsstaðar.

FELDUR

FELDHÁR : Tegundin hefur tvennslags hárafar.
• Snögghærður : Feldhár eru stutt og liggja þétt að öllum líkamanum. Hafi hundurinn undirfeld mega önnur feldhár vera svolítið lengri á hálsi og kvið og aðeins lengri á skotti.
• Síðhærður : Fíngerður feldur, silkikenndur, mjúkur og örlítið liðaður. Ekki er æskilegt að undirfeldur sé of þykkur. Feldhár eru löng á eyrum, hálsi og fótleggjum, að framan og aftan. Hrokkin eða mjög liðuð feldhár eru óásættanleg.

LITUR : Allir feldlitir og öll litaafbrigði eru viðurkennd.

ÞYNGD : Við mat á chihuaha er eingöngu þyngd höfð til viðmiðunar, ekki hæð hundsins.
Þyngd : Æskilega þyngd : milli 1.5 og 3 kg.
Hundar sem eru 500g-1.5kg eru þó viðurkenndir. Hundar yfir 3kg teljast ekki ræktunarhæfir.

GALLAR : Öll frávik frá því sem greint hefur verið frá hér að framan teljast til galla. Alvarleika galla á að meta í samræmi við áherslur í ræktunarmarkmiðinu.
• Skortur á tönnum.
• “Tvöfaldur tanngarður” (barnatennur hjá fullorðnum hundum).
• Vanskapaður kjálki.
• Oddhvöss eyru.
• Stuttur háls.
• Langur búkur.
• Sveigt eða bogið bak (söðulbakaður).
• Hallandi lendar.
• Mjóslegin bringa, bein rifbein.
• Skott : röng skottstaða, stutt eða snúið skott.
• Stuttir fótleggir.
• Útstæðir olnbogar.
• Nágengir að aftan.

ALVARLEGIR GALLAR
• Mjó höfuðkúpa.
• Lítil augu, djúpt í augntóftum eða útstæð.
• Langt trýni
• Undirbit eða yfirbit.
• Hnéskeljalos.

GALLAR SEM ÚTILOKA HUND FRÁ RÆKTUN :
• Árásargjarn eða mjög hlédrægur hundur.
• Hundur sem minnir á hjört (hundur sem ekki er dæmigerður í vaxtarlagi, t.d. með mjótt höfuð, langan háls, langan og grannan búk, langa fótleggi).
• Hundar með stóran lindarblett.
• Hundar með lafandi eða lítil eyru.
Mjög búklangur hundur.
• Skottlaus hundur.
• Siðhærður: Hundur með mjög síðan eða liðaðan feld.
• Snögghærður: Hundur með skallabletti (alopecia).
• Þyngt yfir 3 kg.

Hundur sem sýnir augljós merki um líkamlega eða andlega vanheilsu telst vera óræktunarhæfur.

ATHUGÐ : Rakkar eiga að hafa bæði eistun af eðlilegri stærð og rétt staðsett í pungi.

Þessi ræktunarmarkmið taka gildi í september 2004.


 

© Conan Catchas-ræktun. Allur réttur áskilinn.

Daníel Örn Hinriksson

Vefsíða: Anja Björg Kristnsdóttir.