Það var árið 2001 þegar svo var komið að þörfin bankað á dyr hjá mér að fá aftur hund. Áður hafði ég átt þýskan fjárhund sem því miður þurfti að kveðja þennan heim langt fyrir aldur fram. Það var Tinna mín. Í þetta sinnið langaði mig í smáhund, húsnæði bauð ekki uppá annað. Ég fór að velta því fyrir mér hvernig hund ég vildi. Skapgerð þýska fjárhundsins hafði alltaf heillað svo ég lagði strax upp með fá mér hund sem væri skarpur, hugaður og uppátækjasamur. Ég fletti mörgum bókum en aðal bókin sem ég studdist við var Stóra hundabók Fjölva. Ég féll strax fyrir Chihuahua og Poodle. Við tóku símtöl og og eldhúsumræður yfir kaffibollum við fólk sem sitthvað vissi um hunda, um kosti og galla tegundana tveggja sem heilluðu mig.

Ég fór á mínu fyrstu hundasýningu með þetta ákveðna verkefni mitt í huga það sama ár og sá engan poodle-hund en nokkra chihuahua-hunda. Sá ég í fyrsta sinn þann rómaða Íslands-Ísafoldar Angantýr og má segja að hjartað hafi hætt að slá. Þvílíkur þokki, sjarmi og öryggi sem inná gólfið kom...maður minn, ég var fallinn. Ekki spillti fyrir að sjá svo lítinn snögghærðann chihuahua hvolpa í miklu stríði við sýnanda sinn, barðist á hæl og hnakka um að komast aftur útúr sýningarhringunum, þrjóska hvolpsins fékk mig til að steinliggja fyrir tegundinni...!

Árið 2002 fékk ég minn fyrsta chihuahua, síðhærða tík frá Ástu Dóru Ingadóttur í Mosfellsdalnum. Pínulítið kríli sem alla náði að bræða, má ég kynna Íslands-Ísafoldar Kolku. Kolka fékk strangt uppeldi frá fyrsta degi, lítið sem ekkert var haldið á henni því hún skyldi verða hundur!!! Það var ýmislegt á dýrið lagt, þó ekkert sem hún réði ekki við, og voru einkunnarorð uppeldisins; það sem ekki drepur hana herðir hana... Betri vin hefur ekki verið hægt að eiga. Kolka er í dag sjö ára gömul, íslenskur meistari með þrjú alþjóðlega meistarastig, orðin langamma og heilbrigðið uppmálað!

Hundarnir hafa svo komið einn af öðrum, búsettir hér heima og að heiman en í minni eigu, ýmist innfluttir utan úr heimi eða fæddir hér. Árið 2004 fékk ég svo ræktunarnafnið mitt, Conan Catchas, samþykkt hjá FCI.

Ég hef tekið virkan þátt í starfi Hundaræktarfélags Íslands og Chihuahua-deildarinnar sem ég tók þátt í að stofna árið 2005 með öðru góðu og dugmiklu fólki. Ég hef gegnt ýmsum störfum innan deildarinnar, meðstjórnandi, ritari og formaður. Samhliða þessum störfum hef ég sótt þau ræktunarnámskeið sem í boði hafa verið hjá félaginu, hundfiminámskeið og fleira.

Ég hvet alla sem ætla að fá sér hund að meta kosti tegundanna, hvort þeir kostir séu til þess fallnir að unnt sé að fullnægja þeim. Það er ábyrgð til margra ára að fá sér hund og hundtegundin verður að henta hverjum og einum, hundategundirnar eru jú mjög ólíkar. Vandið valið... ;)

 

 

© Conan Catchas-ræktun. Allur réttur áskilinn.

Daníel Örn Hinriksson

Vefsíða: Anja Björg Kristnsdóttir.